Síminn hf: Fjölda margir viðburðir
True North hefur unnið með Símanum að nokkrum stærri verkefnum fyrirtækisins á sviði viðburða á undanförnum misserum, þ.m.t. undirbúning og framkvæmd Starfsdags Símans 2005, Árshátíð Símans 2006, 2007 og 2008 ásamt ýmsum veislum, partýum og öðrum uppákomum á fyrirtækja- og einstaklingsmarkaði sem Síminn hefur staðið fyrir. Allir þessir viðburðir hafa heppnast einstaklega vel og undirbúningur og framkvæmd verið vel leyst af hendi starfsmanna TN í góðri samvinnu við starfsmenn Símans. Samstarfið hefur gengið vel og áætlanir staðist. Starfsmenn TN eru fagmanleg og leggja sig fram við að láta hlutina ganga upp eftir óskum viðskiptavinarins. Því gef ég þeim mín bestu meðmæli til að leysa vandasöm verkefni á þessu sviði og búa til þá upplifun sem leitað er eftir.
Tæknivörur: Fjölda margir viðburðir
Ég hef unnið með Truenorth í fjöldamörg ár. Fyirtækið hefur tekið að sér mjög mörg krefjandi verkefni fyrir Tæknivörur og í öllum tilfellum hefur vinna þeirra verið óaðfinnanleg. Truenorth hefur að skipa einstaklega hæfu starfsfólki þar sem skipulag, gæði, útsjónarsemi og þjónustulund einkennir starf þeirra. Það hefur fært mér og mínu starfsfólki mikla ánægju að starfa með þeim öll þessi ár.
Unifem: Fiðrildavikan
Ég átti því láni að fagna að vinna með Truenorth að skipulagningu fjáröflunarkvöldverðar í Fiðrildaviku UNIFEM 2008. Hjá Truenorth er fagmennska í fyrirrúmi, sveigjanleiki og hæfileikinn til að hugsa út fyrir boxið.
Alcoa Fjarðarál: Opnunarhátíð á Reyðarfirði 9. júní 2007 / 3000 manna "carnival"
Sæl öll, ég þakka ykkur öllum sömuleiðis og fannst samstarfið einkar ánægjulegt. Menn á Reyðarfirði eru almennt í skýjunum yfir þessari glæsilegu hátíð.
Lögreglan á Eskifirði: Opnunarhátíð Alcoa Fjarðaráls á Reyðarfirði
Sæll Þór, ég þakka þér og þínu fólki fyrir frábæra og fagmannlega skipulagningu, samvinnuna, og vona að þið hafið skemmt ykkur eins vel og við gerðum.
BUFF
Ég hef starfað með True North á mörgum atburðum með Hljómsveitinni Buff. TrueNorth er fyrirtæki sem alltaf er hægt að stóla á varðandi uppsetningu og skipulag á hvers kyns atburðum, þegar maður kemur að slíku sem skemmtikraftur er alltaf gott að vita af góðu fólki sem stýrir hlutunum því þá getur maður farið áhyggjulaus á svið og einbeitt sér að því að skemmta fólki. Þarna eru sannir atvinnumenn í öllum deildum og á öllum sviðum. En sem betur fer þá vita þeir líka sín takmörk og vita einnig hverjir eru helstu atvinnumennirnir á sviðinu sjálfu. Það er alltaf gott að vinna með slíku fólki.
Birgitta Haukdal
Ég hef unnið með Truenorth nokkrum sinnum, bæði í gegnum tónlistina mína og einkalíf. Öll vinnubrögð eru ótrúlega fagmannleg og til fyrirmyndar. Þau sjá og hugsa mjög vel um tónlistarmennina sem og gestina. Ég mæli hiklaust með þeim og hlakka til að vinna með þeim á ný.
STEFÁN HILMARSSON
Ég hygg að True North sé treystandi fyrir hvaða viðburði sem er, jafnt leiðtogafundi sem loftbelgjasýningu. Frumleiki, fagmennska og fumleysi eru orð sem ríma vel við þetta firma, sem er eitt hið reyndasta á sínu sviði hérlendis.
Landsbankinn: Fjölda margir viðburðir
Undirritaður hefur starfað fyrir hönd Landsbankans að fjölmörgum verkefnum með True North á síðastliðnum árum. Verkefnin hafa verið margvísleg, stór sem smá, en eiga það sameiginlegt að hafa verið stýrt af fagmennsku og þekkingu af starfsfólki True North. Nálgun þeirra hvað varðar viðburðarstjórnun er svo fagmannleg að eftir því er tekið. Skipulag og verkferlar eru í föstum skorðum og hugmyndaauðgi og kostnaðarmeðvitund ávallt til staðar. Af þeim fjölmörgu vel heppnuðu verkefnum sem True North hefur stýrt fyrir Landsbankann má nefna sérstaklega árshátíð bankans í Egilshöll í mars sl. Hún fór langt fram úr væntingum og er samdóma talin sú besta í sögu bankans. Það er mér sönn ánægja að veita True North mín allra bestu meðmæli fyrir hönd Landsbankans.
Eimskip: Fjölda margir viðburðir
True North hefur komið að skipulagningu fjölda margra atburða fyrir Eimskip sem allir hafa heppnast eins og til var ætlast. Hvort sem um hefur verið að ræða fámenna kvöldverði fyrir mikilvæga erlendra aðila, boð fyrir viðskiptavini eða starfsmannaveislur fyrir yfir 1.000 manns þá hefur True North séð til þess að allt hafi heppnast vel og gott betur. True North hefur unnið náið með Eimskip að skipulagningu margra mismunandi atburða og hafa hugmyndir þeirra fallið í góðan jarðveg. Helsti kostur samstarfs við True North er að hægt er að treysta þeim fullkomlega til að sjá um allt frá A til Ö og vita að þau standa alltaf við það sem þau segja.
N1 (Esso): Afhjúpun nýs nafns
Truenorth sáu um viðburðarstjórnun þegar N1 afhjúpaði nafn sitt í veglegri veislu sem haldin var fyrir starfsfólk félagsins og maka í Listasafni Reykjavíkur 13. apríl 2007. Starfsfólk Truenorth sýndi mikla fagmennsku og skipulagshæfni í alla staði. Gildir þá einu hvort horft er til matar, dagskrár eða glæsilegrar umgjörðar. Takk fyrir okkur!
Iceland Travel: Natoþing í Laugardalshöll 5. - 7. okt. 2007
Sæll Þór og þið öll, mig langaði til að senda ykkur smá kveðju frá okkur hjá Iceland Travel með þakklæti fyrir allt góða samstarfið undanfarnar vikur og mánuði. Það var mikla ánægju með þingið og allt sem því viðkom, salirnir vel gerðir og skreyttir, Perlan flottari en nokkursinni og Listasafnið algjör snilld.
Daddi Diskó
Í gegnum tíðina hefur Truenorth tekist aftur og aftur að framleiða viðburði sem skarað hafa framúr varðandi hugmyndir, útfærslu, staðsetningu og upplifun gesta. Skilningur þeirra á þörfum viðskiptavina, skörp sýn á mikilvægi tímasetninga í dagskrá og útsjónarsemi hefur lyft viðburðastjórn á Íslandi á alveg nýjan stall. Um nokkurra ára skeið hef ég komið að stórum og smáum viðburðum undir styrkri stjórn fyrirtækisins sem hefur á að skipa frábærum hópi fagfólks sem er hrein unun að starfa með.
Exista
Þakka samvinnuna við undirbúninga aðalfundar. Þegar álagið er mikið og mikið liggur við er frábært að hafa hæfa fagmenn til að hafa yfirsjón með framkvæmdinni og sjá til þess að allt gangi rétt og vel fyrir sig. Það er að ótal mörgu að huga, margt getur farið úrskeiðis en ekkert má klikka og þá var gott að hafa ykkur til að kippa í spotta, afstýra krísum og bjarga málunum.
Glitnir
Þau verkefni sem ég hef unnið með Truenorth hafa verið hafa verið ólík að gerð og umfangi. Truenorth hefur sýnt að þau eru fljót að finna úrlausnir á óvæntum hlutum sem geta komið upp í skipulagningu á viðburðum. Fagmennska og eldmóður einkennir þeirra starf og sérstaklega ánægjulegt er að vinna með þeim.
Skjárinn ehf.
Þegar ákveðið var að hafa haustfagnað SkjásEins glæsilegri en nokkru sinni fyrr var ákveðið að leita til True North og fá þau til að sjá um skipulagninguna á viðburðinum. Það er óhætt að segja að við vorum himinlifandi með þeirra þjónustu. Til að byrja með tóku þau hugmyndir okkar skrefinu lengra og allt sem var talað um í upphafi verkefnisins var staðið við. Voru þau mjög úrræðagóð og fagmannleg í sinni vinnu ásamt því að samskipti okkar á milli voru óaðfinnanleg. Við hikum ekki við að gefa True North okkar bestu meðmæli og mælum með þeim 100% fyrir þá sem eru að leita sér að samstarfsaðila.
120 ára afmæli Landsbankans
Vegna 120 ára afmælis Landsbankans hefur mörgum stórviðburðum verið hrundið í framkvæmd á afmælisárinu, viðburðum sem krefjast mikillar skipulagningar, útsjónarsemi og samræmingar á landsvísu. Aftur og aftur hef ég fyrir hönd bankans fengið fyrirtækið Truenorth í samstarf á þessu afmælisári til að tryggja sem bestan árangur því fyrir mér er gríðarlega mikilvægt að vinna með fólki sem er faglegt og ég get treyst 100%. Fólki sem tekur hugmyndir manns lengra, kemur með nýjar og kemur hugmyndunum í framkvæmd óaðfinnanlega. Samstarf mitt við Truenorth hefur verið ómetanlegt og mæli ég með þeim við alla þá sem þurfa á svona samstarfsaðila að halda.
BUBBI
Fagmennska, öryggi, allt eins og stafur á bók og frábært starfsfólk.
NÝDÖNSK
Hljómsveitin Nýdönsk hefur margsinnis komið fram á viðburðum sem Truenorth skipuleggur. Skipulag og öll framkvæmd er ávallt til fyrirmyndar og samstarf okkar við fyrirtækið hefur verið frábært í alla staði.
FELIX BERGSSON
Á undanförnum árum hef ég verið þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að vinna með True North að mismunandi uppákomum og verkefnum. Það er einstaklega ánægjulegt að vinna með True North. Starfsfólk fyrirtækisins hefur náð gríðarlegri hæfni í þeim verkefnum sem þau taka sér fyrir hendur. Ljúfmennska, atvinnumennska og jákvætt viðhorf einkenna allt þeirra starf.